Friday, April 4, 2008

Leti helgi!



Hellú! Ég veit að síðasta færsla var ekki skemmtileg en ég var bara í svo vondu skapi að ég þurfti bara útrás. Núna er ég búin að fá gleði mína á ný. Ætla svo að chilla þessa helgina. Ekkert djamm og rugl heldur heimahangs, tölvan, tónlist og sjónvarpið. Ég er enn barnlaus og verð það fram yfir helgina. Talaði við skvísuna áðan og þá var hún sko í Kópavogi og nýkomin úr bíó. Henni þykir voða flott að hafa frá einhverju svona að segja. Ég sakna hennar voða mikið þegar hún er ekki hér en ég reyni líka að gera eitthvað fyrir sjálfa mig og slaka eins mikið á og ég get. Ekki geri ég ráð fyrir því að vera mikið utanhús þessa helgina enda heldur áfram að snjóa hér og ég (og fleiri) búin að fá upp í kok á þessum endalausa snjó. Ég er búin að þrjóskast við í allan vetur að setja ekki vetrardekkin undir og hugsa alltaf það tekur sig ekki úr þessu en svei mér að það hefði sko borgað sig frá upphafi vetrar eða c.a í okt/nóv. En kagginn kemst allt innanbæjar svo ég kvarta ekki. Það eina sem ég kvarta yfir þessa dagana er hárið á mér!! Nú hef ég ekki farið í klippingu svoooo lengi enda að reyna að þrjóskast við að safna hári til að fá mér klippingu sem ég þarf ekki að halda við í hverjum mánuði. Aðeins að hvíla mig á stutta hárinu og fá mér sítt!. Ég væri löngu búin að fara í klippingu á Egilsstaði ef það væri ekki svona leiðinlegt veður alltaf og svo kemst ég bara á laugardögum en hef ekki komist samt. Nú er það því bara hárbandið til að halda lubbanum frá andlitinu. Jæja, það er best að vera ekki að blogga meira um ekki neitt! þurfti bara að skrifa eitthvað af skildurækni. Góða helgi alle sammen kveðja Drabban

Tuesday, April 1, 2008

Þetta var svo sem vitað mál!!

Þetta var á mbl.is í dag og ég varð bara að láta þetta fljóta hér!!


Greina ekki á milli vinsemdar og daðurs

Karlar gera almennt ekki greinarmun á almennri vinsemd kvenna og daðri, samkvæmt niðurstöðum nýrrar bandarískrar könnunar. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Fram kemur í könnuninni, sem unnin var á vegum háskólans í Indiana, að það gildi einu hvort konur horfi brosandi beint í augu karla eða leggi hönd á læri þeirra. Flestir þeirra geti hreinlega ekki greint á milli vinsemdar kvenna og daðurs.

Könnunin var gerð með þeim hætti að fylgst var með 280 námsmönnum af báðum kynjum. Voru þeir m.a. látnir geragrein fyrir því hvernig fólk af hinu kyninu virkaði á þá af myndum. Niðurstaðan, sem birt er í tímaritinu Psychological Science, er sú að konur séu mun færari en karlar í að lesa líkamlega tjáningu hins kynsins.

Könnunin leiðir einnig í ljós að karlar misskilja ekki síður almenn vinahót kvenna en daður. Þá sýna viðtöl við námsmennina að konur telja karla mun næmari á slík skilaboð en þeir eru í raun.

„Skili daðrið ekki tilætluðum árangri þá getur vel hugsast að um misskilning sé að ræða fremur en áhugaleysi,” segja aðstandendur könnunarinnar í skýrslu sinni.

Dr. Coreen Farris, sem stjórnaði könnuninni, hvetur þó konur til að halda áfram að reyna. „Þetta eru meðaltalsniðurstöður. Sumir karlar eru mun næmari á slík merki en aðrir,” segir hún.


Kannski maður hafi aðeins of oft orðið vitni af svona misskilningi hjá hinu kyninu!!!
Nenni ekki að blogga vegna leti og auk þess er ég í mjög vondu skapi!!!
kveðja Drabban